Næsta dag hitti ég þær mæðgur Steinu og Eygló. Við röltum Laugarveginn og þær voru í þessu líka banastuði til að versla að þær náðu að smita mig. Við Eygló keyptum okkur m.a. kínverska silkikjóla, vorum ægilega fínar þótt að afgreiðsludömunni hafi þótt við hálfþybbnar og vilja koma okkur í XL kjóla.
Um kvöldið borðaði ég hjá Salnýju, Alla og Lilju Fanneyju. Lilja er farin að tala ótrúlega mikið, mjög skemmtilegt að hlusta á hana en hún verður 2 gja ára 23. júlí.
Svo fór ég daginn eftir útí Viðey með áðurnefndum mæðgum, það var mjög fínt og við fengum gott veður.
Ég gerði svo ýmislegt fleira en þetta var amk fólkið sem ég hitti. Þeim fækkar hratt sem ég get heimsótt í borginni, allir að flytja til útlanda eða útá land.
Mamma og pabbi hafa verið að hjálpa Hörpu og Gunnari síðustu 10 daga við að rífa upp parket, rífa niður innréttingu og mála í nýja húsinu sem þau voru að kaupa sér á Ísafirði. Þetta er hið myndarlegasta einbýlishús með tvöföldum bílskúr og góðum garði og palli þar sem er alltaf heitt að mér skilst. Þau koma heim á morgun og taka þá strákana Birki og Kára með sér, þá ætti að lifna aðeins yfir Marbakka 13 ;-)
...Og húsið, innréttingin frá Ikea var að koma í dag og málararnir klára líka í dag. Þannig á morgun byrjum við að mála og setja saman skúffur eins og við eigum lífið að leysa. Svenni ætlar að reyna að taka sér frí eftir hádegi næstu vikur svo við eigum minsta séns á að komast inn um Verslunarmannahelgi, ég veit ekki alveg hvernig þetta fer hjá okkur en innflutningspartý verður amk haldið eins og lofað var.
Jæja þetta er orðið gott í bili, heil og sæl (eins og Smári Geirs myndi orða það)
mánudagur, 10. júlí 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Þetta hefur greinilega verið góð ferð til Rvk. og nóg sem tekur við að gera núna. Greinilegt að við erum ekki á dagskrá á næstunni;) Gangi ykkur vel að mála og skrúfa.
Takk mín kæra, það er aldrei að vita hvenær við komum, birtumst kannski bara við dyrnar ;-)
Gaman hvað þú ert dugleg að blogga. Er að reyna að taka mér þig til fyrirmyndar þessa dagana. Svo verðum við að plana uppákomu í Kínakjólunum (og Ecco skónum kannski líka) :)
Þú ert nú ekkert sérstaklega dugleg að blogga lengur...
jæja
Skrifa ummæli