það gerist ansi oft að nemendur eru skráðir hjá mér en mæta ekki eins og núna. Þá nenni ég ekki að byrja á neinu. Hér er kominn vetur, sem er allt í lagi mín vegna fyrir utan það að aðra hverja viku þarf ég að dröslast yfir á Reyðarfjörð til að fara á fund hjá Fræðsluráði. Það er með ólíkindum hvað ég er orðin mikinn aumingi að keyra á veturna. Ef Svenni er með mér læt ég hann alltaf um þetta ef eitthvað er að færð. Þegar ég var 17-19 var nú lítið mál að festast í miðri brattri brekku vegna hálku. Ég lét mig bara vaða afturá bak niður brekkuna þangað til ég fann einhvern auðan blett og reyndi þá upp án nýtt. En kannski kemst ég í smá æfingu í vetur.
Við fórum til Akureyrar um síðustu helgi ásamt mömmu og pabba til að hitta Hörpu og fjölsk. Við gistum í sumarbústöðum í Fögruvík en þeir eru rétt fyrir utan Akureyri vestan meginn í firðingum. Það var mjög fínt að hitta fjölskylduna en það gerist alltof sjaldan. Það er svo helvíti langt til Ísafjarðar og brjálæði að fljúga vegna kostnaðar. Vonandi koma þau um jólin til okkar þar sem ég verð líklega ekki í formi til að þvælast til Ísafjarðar.
Það gengur ágætlega í húsinu okkar þannig séð, Svenni ætlaði nú að setja myndir inn í dag, vonandi gerir hann það.
Ég þarf að fara að taka mig á í náminu mínu, þarf að skila 4 verkefnum í nóvember. Þám fara í djúpa sjálfsskoðun til að komast að því afhverju ég vil vera námsráðgjafi, hvað er það í æsku minni sem gæti haft áhrif á starfið, fyrir hvaða undarlegu hvötum finn ég sem gætu hamlað mér í starfi osfrv. Ég hlýt bráðum að verða mjög meðvituð um mína kosti og galla eins og ég lendi oft í að tjá mig um þá í námi og námskeiðum.
Jæja best að vinna smá áður en ég skelli mér yfir á Reyðarfjörð á fund.
Takk fyrir að hlusta
miðvikudagur, 25. október 2006
þriðjudagur, 3. október 2006
Blogg er ekki fyrir alla
ætli það sé ekki komið í ljós að það að blogga er ekkert fyrir mig? Ég læt samt reyna á þetta aðeins lengur áður en ég loka síðunni. Datt í hug að blogga núna ótrúlegt en satt. Er í vinnunni að bíða eftir kynningu sem ég verð með fyrir foreldra barna í Nesskóla sem taka þátt í mentorverkefninu vináttu. Það er áfangi sem ég kenni þar sem framhaldsskólanemar taka að sér börn úr grunnskóla (einn nemi eitt barn) og verja 2-3 stundum á viku með þeim. Mjög spennandi.
Ég viðurkenni að það að blogga kom ekki fyrst upp í hugann, reyndi að klára að horfa á fyrirlestur sem er á netinu í námsráðgjafa náminu mínu, en hann opnaðist aldrei.
Ég hef sem sagt alveg nóg að gera þessa mánuðina. Svenni greyið hefur nánast einn og óstuddur þurft að brasa í húsinu þau kvöld sem hann er heima þannig að það gengur kannski ekkert súper hratt en samt...
Tók viðtal við Auði um daginn, en það var eitt verkefni í náminu mínu sem hún var svo almennilega að taka þátt í. Hún sem sagt ræddi ákveðið vandamál í sínu lífi við mig, ég tók samtalið upp. Um var að ræða virka hlustun þar sem ég endurtek og endurorða það sem hún segir en gef engin ráð, mjög gagnlegt. Svo settist ég niður og pikkaði allt orðrétt inn og greindi það sem ég sagði og hvaða áhrif það hafði á Auði, haldið þið að þetta sé ekki spennandi?
Annars er bara allt í besta lagi. Veðrir æðislega fallegt síðustu tvo daga, óléttan gengur mjög vel og allt í góðu.
Ég er að þjálfa 2. deildar konur í blaki, það er fínt, tek nú ekki mikinn þátt með þeim, spila þó stundum upp til að gera eitthvað.
Bloggið þolir ekki langar færslur (og heldur ekki margar;-) þannig að ég læt þetta duga af mér í bili.
Sjáum til hvenær ég blogga næst...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)