það gerist ansi oft að nemendur eru skráðir hjá mér en mæta ekki eins og núna. Þá nenni ég ekki að byrja á neinu. Hér er kominn vetur, sem er allt í lagi mín vegna fyrir utan það að aðra hverja viku þarf ég að dröslast yfir á Reyðarfjörð til að fara á fund hjá Fræðsluráði. Það er með ólíkindum hvað ég er orðin mikinn aumingi að keyra á veturna. Ef Svenni er með mér læt ég hann alltaf um þetta ef eitthvað er að færð. Þegar ég var 17-19 var nú lítið mál að festast í miðri brattri brekku vegna hálku. Ég lét mig bara vaða afturá bak niður brekkuna þangað til ég fann einhvern auðan blett og reyndi þá upp án nýtt. En kannski kemst ég í smá æfingu í vetur.
Við fórum til Akureyrar um síðustu helgi ásamt mömmu og pabba til að hitta Hörpu og fjölsk. Við gistum í sumarbústöðum í Fögruvík en þeir eru rétt fyrir utan Akureyri vestan meginn í firðingum. Það var mjög fínt að hitta fjölskylduna en það gerist alltof sjaldan. Það er svo helvíti langt til Ísafjarðar og brjálæði að fljúga vegna kostnaðar. Vonandi koma þau um jólin til okkar þar sem ég verð líklega ekki í formi til að þvælast til Ísafjarðar.
Það gengur ágætlega í húsinu okkar þannig séð, Svenni ætlaði nú að setja myndir inn í dag, vonandi gerir hann það.
Ég þarf að fara að taka mig á í náminu mínu, þarf að skila 4 verkefnum í nóvember. Þám fara í djúpa sjálfsskoðun til að komast að því afhverju ég vil vera námsráðgjafi, hvað er það í æsku minni sem gæti haft áhrif á starfið, fyrir hvaða undarlegu hvötum finn ég sem gætu hamlað mér í starfi osfrv. Ég hlýt bráðum að verða mjög meðvituð um mína kosti og galla eins og ég lendi oft í að tjá mig um þá í námi og námskeiðum.
Jæja best að vinna smá áður en ég skelli mér yfir á Reyðarfjörð á fund.
Takk fyrir að hlusta
miðvikudagur, 25. október 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Uss ja eg er lika svona med ad keyra a veturna, eg hef bara aldrei kunnad ad keyra i halku eda snjo. Annars gaman ad sja hvad thu ert virk. Tvo blogg i manudi thykir nu bara nokkud gott!
Jæja, þrír dagar síðan þú bloggaðir og ég er fyrst að sjá þetta núna. Er ekki alveg að standa mig sem traustasti lesandinn ;) En þú stóðst við loforðið um annað blogg í þessum mánuði :)
En já það er hundleiðinlegt að keyra í snjó og hálku.
Það var einmitt svakaleg snjókoma á leiðinni og ég þurfti að stoppa einu sinni á leiðinni upp skarðið vegna skafrennings. Samt keyrði ég eins og vitleysingur á leiðinni til Reyðarfjarðar, tók fram úr nokkrum á leiðinni þar sem ég er alltaf of sein. Held samt að það hafi læknað mig aðeins af mestu hræðslunni að geysast svona áfram...
Nú fer að koma tími á annað blogg...
Skrifa ummæli