þriðjudagur, 3. október 2006

Blogg er ekki fyrir alla

ætli það sé ekki komið í ljós að það að blogga er ekkert fyrir mig? Ég læt samt reyna á þetta aðeins lengur áður en ég loka síðunni. Datt í hug að blogga núna ótrúlegt en satt. Er í vinnunni að bíða eftir kynningu sem ég verð með fyrir foreldra barna í Nesskóla sem taka þátt í mentorverkefninu vináttu. Það er áfangi sem ég kenni þar sem framhaldsskólanemar taka að sér börn úr grunnskóla (einn nemi eitt barn) og verja 2-3 stundum á viku með þeim. Mjög spennandi.
Ég viðurkenni að það að blogga kom ekki fyrst upp í hugann, reyndi að klára að horfa á fyrirlestur sem er á netinu í námsráðgjafa náminu mínu, en hann opnaðist aldrei.
Ég hef sem sagt alveg nóg að gera þessa mánuðina. Svenni greyið hefur nánast einn og óstuddur þurft að brasa í húsinu þau kvöld sem hann er heima þannig að það gengur kannski ekkert súper hratt en samt...
Tók viðtal við Auði um daginn, en það var eitt verkefni í náminu mínu sem hún var svo almennilega að taka þátt í. Hún sem sagt ræddi ákveðið vandamál í sínu lífi við mig, ég tók samtalið upp. Um var að ræða virka hlustun þar sem ég endurtek og endurorða það sem hún segir en gef engin ráð, mjög gagnlegt. Svo settist ég niður og pikkaði allt orðrétt inn og greindi það sem ég sagði og hvaða áhrif það hafði á Auði, haldið þið að þetta sé ekki spennandi?
Annars er bara allt í besta lagi. Veðrir æðislega fallegt síðustu tvo daga, óléttan gengur mjög vel og allt í góðu.
Ég er að þjálfa 2. deildar konur í blaki, það er fínt, tek nú ekki mikinn þátt með þeim, spila þó stundum upp til að gera eitthvað.
Bloggið þolir ekki langar færslur (og heldur ekki margar;-) þannig að ég læt þetta duga af mér í bili.
Sjáum til hvenær ég blogga næst...

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, það verður ekki annað sagt en að ég sé þolinmóð og vongóð manneskja...og já, mikið rétt stundum borgar það sig :) Gaman að sjá blogg frá þér.

Hrönn Grímsdóttir sagði...

Húrra þú hefur verið útnefnd minn traustasti lesandi, í verðlaun er annað blogg í sama mánuði ;-)

Hrabbý sagði...

Ég pissaði næstum á mig af hamingju yfir nýju bloggi :)

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá lífsmark ;o)

Nafnlaus sagði...

ja hérna hér... detta nú allar dauðar lýs úr höfði mér... þetta var óvænt.. en gaman. Gott að meðgangan gengur vel, er með þér daglega í anda á henni. þurfti einmitt að gera tvö svona viðtöl í hjúkrunarnáminu og á að fara að gera eitt í haust og þarf einmitt konu til að ræða um viðkvæmt málefni ef einhver bíður sig fram. Hugsa ekki um annað en hvernig ég geti sloppið billiga við þetta...Anyways hugsum mikið til ykkar og söknum..

Nafnlaus sagði...

Æði Hrönn.. svo gaman að lesa af þér þrátt fyrir að það sé stutt á milli okkar... er svo magnað að það séu bara nokkrir metrar en samt hittumst við svona sjaldan... hvað er málið? Það er nú bara gaman að svona viðtölum þegar það gengur svona vel. Hvaða málefni ert þú með Salný?
Knús til ykkar Hrönn mín!

Nafnlaus sagði...

En gaman. Eg er tha væntanlega otraustasti lesandinn ad uppgotva thetta ekki fyrr en fimm dogum sidar. Eg hef thad tho mer til malsvarnar ad thad hefur verid mikid ad gera i lestri og skola:) Yndislegt ad heyra ad allt gengur vel. Og thar sem thessi skolatorn er buin hja mer nuna tha ætla eg ad fara ad trufla thig i vinnunni bradum!!!

Hrönn Grímsdóttir sagði...

Jóhanna mín 5 dagar eru ekki neitt í bloggheiminum ;-) Ekki í hinum raunverulega heimi heldur reyndar. Takk fyrir kveðjurnar mínar kæru vinkonur.

Nafnlaus sagði...

Mjög ánægður með þetta lífsmark. Og koma svo!

Jón Knútur.