sunnudagur, 12. nóvember 2006

frh

Við erum komin með barnaherbergi en ekkert inní það. Ætli við fjárfestum ekki í rúmi og skiptiborði í desember bara og látum það duga í bili. Ég er bara nokkuð góð þessa dagana, er ekki eins þreytt og ég var fyrir kannski 2 vikum. Fékk sprautu af B12 vítamíni sem mig vantaði víst. Ég las mér til um einkenni B12 vítamínsskorts þau voru þreyta, kvíði og félagsfælni, þar hafið þið það. Barnið er mjög öflugt. það sparkaði í rassinn á pabba sínum einn morguninn þannig að hann fann vel fyrir því, það hafði reyndar gert nokkrar tilraunir til þess áður sem pabbinn fann ekki fyrir. Það þrýstir sér einnig vel upp undir rifbeinin á mömmu sinni þannig að oft á ég erfitt með að halla mér fram. Ég er líka farin að finna vel fyrir því þegar barnið er að snúa sér án þess að það sé endilega að sparka þótt það geri mikið af því líka. Ég skil ekki hvernig ég get átt 10 vikur eftir!! Ég finn þegar ég ligg niðri að það heldur sig mikið hægra megin, ég vona bara að það hafi ekkert með komandi stjórnmálaskoðanir að gera. Það togast á mjög rík hefð fyrir hægri skoðunum í ætt pabbans og vinstri skoðunum í ætt mömmunar.
Annars splæstum við í rafmagnsrúm um daginn. Þess vegna fær barnið engin húsgögn. Ég tel það hafa bjargað mínu skólanámi, þess vegna er ég svona róleg í dag. Nú get ég lært með tölvuna upp í rúmi í góðri stellingu það er bara æði.
Jæja læt þetta duga í bili.
Hrönn

16 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta hljómar vel. Ég deili nú áhyggjunum með þér af stjórnmálaskoðununum. Þetta er ekki vandamál hjá mér. Ég vona að móðurhefðin hafi yfirhöndina hjá ykkur! Annars sakna ég þess að geta ekki séð ykkur, bumbuna og húsið ykkar. Hmmm er kannski e-ð nýtt á myndasíðunni hjá Svenna? Mange kærlige hilsner:)

Nafnlaus sagði...

híhíhí... ég veit alveg hvernig þetta fer með ungann ykkar og pólitík þar sem þú ert til vinstri og svenni til hægri... hann verður framsóknarmaður ahahahahaha.. er ég ekki fyndin? En annars lætur þetta óléttutal ljúflega í mín eyru, það er svo gaman að vera ólétt og svo eru óléttar konur svo meiri háttar.. Skemmtilegustu konur í heimi.. Kíktu endilega við þegar þú kemur í bæinn. Kv. SAlný

Nafnlaus sagði...

Föðursystirin mun gera sitt til að halda "réttum" stjórnmálaskoðunum að barninu ;)

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta.. gaman að eiga inni 2 blogg þegar maður kíkir hér inn.. þú stendur þig mun betur en ég! Gaman þetta hjal og takk fyrir síðast.. vertu ávallt velkomin í heimsókn:)
kv frá okkur Dagbjarti

Hrönn Grímsdóttir sagði...

Veit ekki alveg hvort að óléttar konur er svo skemmtilegar. Nota óléttuna sem afsökun fyrir að nenna ekki að elda og taka til og er afspyrnu slök í vinnunni finnst mér. Langar mest til að hætta bara að vinna og hætta í námi. Auður sagði mér að konur i DK fengju að fara í orlof 10 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag, það hljómar mjög vel í mín eyru.

Nafnlaus sagði...

tja ekki fær maður neina hvíld frá húsverkunum þegar maður er ekki óléttur svo það er eins gott að nota þessa afsökun til hins ítrasta.. þú veist að það má byrja að taka fæðingarorlof mánuði fyrir settan dag og svo eru læknar nú almennt frekar skilningsríkir undir lok meðgöngu þegar það er orðið erfitt að hreyfa sig um og stjákla mikið ef vinnan er þess eðlis. en það á náttúrulega bara að vera sjálfsagt að hætta að vinna 4 vikum fyrir fæðingu, þá eiga konur finnst mér oft bara nóg með að vera óléttar. Þetta verður næsta baráttumál fyrir fæðingarorlofslögin. kv. Salný

Nafnlaus sagði...

Mikið er ég sammála þér Salný.. finst þetta fáránlegt kerfi! Segi nú ekki annað! Er held ég á mörgum stöðum þannig að þú átt ákveðinn fastann rétt fyrir fæðinguna.. allavegana í DK og þar minnst 4 vikur.
knús A

Nafnlaus sagði...

Eiga feðurnir þá ekki líka að fá orlofsrétt fyrir fæðingu, a.m.k. væri það rökrétt ef rökin og tilgangurinn fyrir jöfnu fæðingarorlofi móður og föður eiga að halda -> það á að vera jafn (ó)hagkvæmt að ráða karl og konu í vinnu og því er engin ástæða til að ráða konu á lægri launum en karlinn.
Svo virðist það nú eiga að vera full vinna til stjana við óléttar konur þannig að þetta hlýtur að fylgja með í næstu fæðingarorlofslögum.
Og varðandi stjórnmálaskoðanir barnsins þá eru þær örugglega arfgengar og "réttu" genin virðast hafa skilað sér miðað við hegðunina í móðurkviði.
En sama hvernig fer þá skulum við nú bara vona að þarna sé ekki upprennandi framsóknarmaður/kona. Ég tel reyndar litlar líkur á því, tel nokkuð víst að eftir 18 ár verða
ur framsóknarflokkurinn vart nema lítil klausa í sögubókum.

Nafnlaus sagði...

Að sjálfsögðu fara báðir foreldrar í frí 4 vikur f. áætlaðan fæðingardag það hafði nú bara ekki annað hvarflað að mér.. Reyndar vitum við nú alveg hvernig þetta er með launin.. og það hefur ekki breyst neitt undanfarið þrátt fyrir að ítrekað hafi verið bent á kynbundin launamun þannig að nei ég vorkenni körlum ekkert að vinna fram að fæðingu fyrir þessum 15-20% hærri launum sínum, konurnar eru bara að taka út fríið sem þær eiga inni og hana nú..
vona að ég fái ekki mjög bágt fyrir þetta..

Nafnlaus sagði...

He he var ekkert búin að kíkja hingað inn, gott að þurfa ekkert að blogga þetta er miklu skemmtilegra. Það er náttúrulega rétt hjá Salnýju að þetta væri tilraun til að jafna launamuninn. Ég er nú ansi hrædd um að þótt Svenni tæki frí mánuði fyrr færi sá tími ekki í að stjana við mig. En kannski myndi eitthvað gerast í húsinu okkar...

Nafnlaus sagði...

Blooogg. Það er komin nýr mánuður.

Nafnlaus sagði...

Jæjja

Nafnlaus sagði...

snökkt snökkt.. ertu alveg búin að gleyma okkur?..

Nafnlaus sagði...

Hér kíkir maður samviskusamlega reglulega en... EKKERT!

Nafnlaus sagði...

Nú hefurðu ekkert betra að gera en blogga...þar til barnið fæðist.

Svenni sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.