Úff það er svolítið erfitt að byrja að blogga svona. Þótt ég fylgist með nokkrum bloggsíðum sjálf veit ég ekki almennilega hvað ég á að skrifa. Ég er eiginlega að byrja að blogga vegna þess að Jóhanna Helgadóttir krafðist þess en auðvitað hef ég haft lúmska löngun til að blaðra eitthvað á netinu þar sem allir geta lesið...
Svo er annað, ég er svo gleymin, vonandi get ég notað þetta til að koma smá skipulagi á líf mitt og hjálpa mér til að muna hvað ég gerði árið 2006 svo ég geti talað eins og Aðalsteinn: ,,það var sumarið 92 þegar við fórum í göngu til Hellisfjarðar..."
Ég er búin að vera í sumarfríi í tvær vikur núna og hef held ég aldrei gert jafn lítið. Ég veit að þið haldið að ég sé á fullu í húsinu svaka dugleg alla daga en það er ekki rétt. Hákon er búinn að vera í vinnu hjá okkur í nokkrar vikur og ég hætti nánast minni smíðavinnu þegar hann byrjaði, kann bara ekki við að vera að þvælast eitthvað í kringum hann, það gengur líka svo mikið á hjá honum að það gæti verið stórhættulegt að vera fyrir. Ég fer nú stundum seinnipartinn með Svenna eða pabba, tek til og svo höfum við líka verið að klæða búta hér og þar sem uppá vantar. Nú held ég að hægt sé að segja að búið sé að klæða allt húsið ýmist með spónaplötum eða gifsi og það voru sko ýmis skot í húsinu sem tóku sinn tíma, það er nefninlega ekki allt þar sem það er séð, spyrjið bara pabba. En sem sagt málarar hafa verið duglegir að spasla alla vikuna, við ætlum að láta þá grunna allt og svo málum við sjálf í einhverjum töff litum. Svo fáum við innréttingarnar vonandi í lok næstu viku, sjálfboðaliðar óskast til að setja þær saman með okkur!! Hver hefur keypt mest frá Ikea??
En jæja ég ætla ekki að skrifa allt sem ég hef að segja í sömu færslunni, ég veit að fólk hefur ekki mikla athygli fyrir langa texta þannig að ég læt þetta gott heita í bili.
Á maður að kveðja??
föstudagur, 30. júní 2006
fimmtudagur, 29. júní 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)