föstudagur, 30. júní 2006

Erfitt að byrja

Úff það er svolítið erfitt að byrja að blogga svona. Þótt ég fylgist með nokkrum bloggsíðum sjálf veit ég ekki almennilega hvað ég á að skrifa. Ég er eiginlega að byrja að blogga vegna þess að Jóhanna Helgadóttir krafðist þess en auðvitað hef ég haft lúmska löngun til að blaðra eitthvað á netinu þar sem allir geta lesið...
Svo er annað, ég er svo gleymin, vonandi get ég notað þetta til að koma smá skipulagi á líf mitt og hjálpa mér til að muna hvað ég gerði árið 2006 svo ég geti talað eins og Aðalsteinn: ,,það var sumarið 92 þegar við fórum í göngu til Hellisfjarðar..."
Ég er búin að vera í sumarfríi í tvær vikur núna og hef held ég aldrei gert jafn lítið. Ég veit að þið haldið að ég sé á fullu í húsinu svaka dugleg alla daga en það er ekki rétt. Hákon er búinn að vera í vinnu hjá okkur í nokkrar vikur og ég hætti nánast minni smíðavinnu þegar hann byrjaði, kann bara ekki við að vera að þvælast eitthvað í kringum hann, það gengur líka svo mikið á hjá honum að það gæti verið stórhættulegt að vera fyrir. Ég fer nú stundum seinnipartinn með Svenna eða pabba, tek til og svo höfum við líka verið að klæða búta hér og þar sem uppá vantar. Nú held ég að hægt sé að segja að búið sé að klæða allt húsið ýmist með spónaplötum eða gifsi og það voru sko ýmis skot í húsinu sem tóku sinn tíma, það er nefninlega ekki allt þar sem það er séð, spyrjið bara pabba. En sem sagt málarar hafa verið duglegir að spasla alla vikuna, við ætlum að láta þá grunna allt og svo málum við sjálf í einhverjum töff litum. Svo fáum við innréttingarnar vonandi í lok næstu viku, sjálfboðaliðar óskast til að setja þær saman með okkur!! Hver hefur keypt mest frá Ikea??
En jæja ég ætla ekki að skrifa allt sem ég hef að segja í sömu færslunni, ég veit að fólk hefur ekki mikla athygli fyrir langa texta þannig að ég læt þetta gott heita í bili.

Á maður að kveðja??

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sko ef þið viljið ekki vera að mála með allt of litlu millibili þá mæli ég nú bara með því að þið verðið ekki eins "litaglöð" og við vorum. Annars kláruðum við ákveðið skeið með því að mála í dökku og nú erum við bara komin í ljóst og helst bara hvítt!!!

Nafnlaus sagði...

Já ég reyni að læra eitthvað af ykkur, samt langar mig að hafa liti á sumum veggjunum, þá helst grátt eða brúnt. En svo er ég hrifin af ólífugrænum í svefnherbergið.

Nafnlaus sagði...

Hejsa.. gott að þú ert bara tekin við af mér í heimi bloggsins ;o) Takk fyrir kvöldið vinan.. notalegt tøseaften:o)

Nafnlaus sagði...

Jibbý, Hrönn er farin að blogga. Það verður gaman að fylgjast með. Ég mæli með sólgulum á allt húsið :) Alltaf sól og sumar hjá mér.

Nafnlaus sagði...

Hæhó. Gaman af þessu, hef miklar væntingar til þessarar síðu.. Vertu dugleg að blogga...kv. SAlný

Nafnlaus sagði...

Jesús minn Guðsson.
Á dauða mínum átti ég von! Velkomin í bloggheima geitin þín! Hlakka til að sjá fína húsið um versló!