mánudagur, 3. júlí 2006

Reyni að standa mig

Já ég má ekki missa þessa diggu lesendur sem eru búnir að commentera á síðuna :-)
Ég var að kaupa mér flug suður í fyrramálið, Steinunn ætlar að sækja mig og hýsa þessi elska. Hef minnst á áður að mér leiðist svolítið þessa dagana, er bara of löt til að vera í fríi svona án þess að vera í ferðalagi en samt of óróleg til að geta notið þess að gera ekki neitt.
Ég sá fram á að eiga heilan dag með honum Svenna mínum jafnvel án þess að þurfa að fara mikið út í hús í gær. Hann er sko búinn að vera ansi busy mest í kringum björgunarsveitina, var nýbúinn á nokkra daga bátanámskeiði, sem tók m.a. allan laugardaginn. En nei þá var útkall. Þeir stukku af stað til að leita að kajakræðara nokkuð vissir um að þetta væri ísraelsk kona sem er að rúnta ein á kajak kringum landið. Þeir fundu hana strax og hefðu getað komið snemma heim bara ef hún hefði ekki neitað því að hafa sent út hjálparbeiðni. Þeir leituðu því allan daginn af engu (eða vonandi var enginn) en konan viðurkenndi aldrei neitt þannig að þetta var hið dularfyllsta mál.
Við Auður eyddum deginum saman sem var sárabót ;-) löbbuðum um allt og sátum á pallinum hjá henni.
En nú ætla ég að fara að labba á móti Auði (sem hefur ekkert bloggað í meira en mánuð) og við ætlum að kíkja á fínu fötin í System (besta að dressa sig upp fyrir Reykjavíkurferðina ;-) )

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu þá búin að diddsa mér? ...ÉG segi það nú, hún Auður sko...

Úrsúla Manda sagði...

Jæja góða mín, nú líst mér á þig :)Velkomin í bloggheiminn og vertu dugleg að skrifa. Er komin í sæluna svo ég hlýt að rekast á þig þ.e.a.s. þegar þú kemur úr borginni.

Nafnlaus sagði...

Hvað verðurðu lengi í borginni? Við mæðgur verðum væntanlega að túristast um borgina alla vikuna.
Við verðum að heyrast. Bæjó!

Nafnlaus sagði...

Hafðu það gott í borg óttans.. og farðu á Kentucky...mmmmmmmmm Kentucky..hér er enginn kjúklingastaður...bara makkdónalds drasl!

Hrabbý sagði...

Nú líst mér á kerlinguna :) Hafðu það gott í bænum, það verður gaman að fylgjast með ævintýrunum hjá þér ;)