mánudagur, 31. júlí 2006

Afsakið hlé

Fyrirgefið þið, ég veit að að þið gerðuð ykkur miklar væntingar um regluleg skrif. Fer bara svo asskoti sjaldan í tölvuna þessa dagana. Er oftast út í húsi, þó ekkert í líkingu við Svenna sem er alveg hættur að koma heim fyrir miðnætti.
En ég get einhverra hluta vegna ekki skrifað mikið í einu því þá lendi ég í vandræðum með að birta textann. Ég tala því bara um innflutningspartýið í þessari færslu.
Það verður á laugardagskvöldið næsta vitum ekki alveg klukkan hvað. Mínir fáu dyggu lesendur er að sjálfsögðu allir velkomnir. Eitthvað verður í boði af áfengi en fólk má alveg taka smá með sér líka. Mikilvægast er þó að sem flestir taki með sér tvær mismunandi tegundir af bjór (bara eina af hvorri) til að leggja í púkk því svo verður farið í leik (glæsilega verðlaun í boði þó ekki loðnu vettlingarnir hennar Ollu).
En lengra nær planið ekki í bili, læt þetta duga núna, skrifa kannski bara meira strax í kvöld.

mánudagur, 10. júlí 2006

Framhald

Næsta dag hitti ég þær mæðgur Steinu og Eygló. Við röltum Laugarveginn og þær voru í þessu líka banastuði til að versla að þær náðu að smita mig. Við Eygló keyptum okkur m.a. kínverska silkikjóla, vorum ægilega fínar þótt að afgreiðsludömunni hafi þótt við hálfþybbnar og vilja koma okkur í XL kjóla.
Um kvöldið borðaði ég hjá Salnýju, Alla og Lilju Fanneyju. Lilja er farin að tala ótrúlega mikið, mjög skemmtilegt að hlusta á hana en hún verður 2 gja ára 23. júlí.
Svo fór ég daginn eftir útí Viðey með áðurnefndum mæðgum, það var mjög fínt og við fengum gott veður.
Ég gerði svo ýmislegt fleira en þetta var amk fólkið sem ég hitti. Þeim fækkar hratt sem ég get heimsótt í borginni, allir að flytja til útlanda eða útá land.

Mamma og pabbi hafa verið að hjálpa Hörpu og Gunnari síðustu 10 daga við að rífa upp parket, rífa niður innréttingu og mála í nýja húsinu sem þau voru að kaupa sér á Ísafirði. Þetta er hið myndarlegasta einbýlishús með tvöföldum bílskúr og góðum garði og palli þar sem er alltaf heitt að mér skilst. Þau koma heim á morgun og taka þá strákana Birki og Kára með sér, þá ætti að lifna aðeins yfir Marbakka 13 ;-)

...Og húsið, innréttingin frá Ikea var að koma í dag og málararnir klára líka í dag. Þannig á morgun byrjum við að mála og setja saman skúffur eins og við eigum lífið að leysa. Svenni ætlar að reyna að taka sér frí eftir hádegi næstu vikur svo við eigum minsta séns á að komast inn um Verslunarmannahelgi, ég veit ekki alveg hvernig þetta fer hjá okkur en innflutningspartý verður amk haldið eins og lofað var.

Jæja þetta er orðið gott í bili, heil og sæl (eins og Smári Geirs myndi orða það)

Komin heil heim úr Borg óttans

Já ég kom heim seinni part laugardags og nú er komin mánudagur og því tími til að blogga.
Þetta var hin skemmtilegasta ferð þar sem ég hitti marga og fór ekki í neina húsgagnabúð mjög óvenjulegt. Ég fékk að gista hjá Steinunni, Stefáni og Ólínu eins og ég hef fengið svo oft áður, takk kærlega fyrir mig góða fólk.
Ég náði að láta bjóða mér í mat á þremur stöðum. Borðaði hjá St og St fyrsta kvöldið. Öðrum deginum eyddi ég svo með Guðrúnu Hafnfirðingi en við fórum í Kringluna þrátt fyrir að vera báðar í mjög litlu verslunarstuði, en við redduðum því með því að fara á kaffihús. Svo kíkti ég heim til hennar og skoðaði Friðbjörn og Odd Inga sem varð einmitt þriggja mánaða daginn eftir. Algjör dúlla drengurinn og ótrúlega skemmtileg blanda af þeim hjónum, merkilegt að sjá þegar tekin eru tvö ólík andlit og búið til eitt ;-)

mánudagur, 3. júlí 2006

Reyni að standa mig

Já ég má ekki missa þessa diggu lesendur sem eru búnir að commentera á síðuna :-)
Ég var að kaupa mér flug suður í fyrramálið, Steinunn ætlar að sækja mig og hýsa þessi elska. Hef minnst á áður að mér leiðist svolítið þessa dagana, er bara of löt til að vera í fríi svona án þess að vera í ferðalagi en samt of óróleg til að geta notið þess að gera ekki neitt.
Ég sá fram á að eiga heilan dag með honum Svenna mínum jafnvel án þess að þurfa að fara mikið út í hús í gær. Hann er sko búinn að vera ansi busy mest í kringum björgunarsveitina, var nýbúinn á nokkra daga bátanámskeiði, sem tók m.a. allan laugardaginn. En nei þá var útkall. Þeir stukku af stað til að leita að kajakræðara nokkuð vissir um að þetta væri ísraelsk kona sem er að rúnta ein á kajak kringum landið. Þeir fundu hana strax og hefðu getað komið snemma heim bara ef hún hefði ekki neitað því að hafa sent út hjálparbeiðni. Þeir leituðu því allan daginn af engu (eða vonandi var enginn) en konan viðurkenndi aldrei neitt þannig að þetta var hið dularfyllsta mál.
Við Auður eyddum deginum saman sem var sárabót ;-) löbbuðum um allt og sátum á pallinum hjá henni.
En nú ætla ég að fara að labba á móti Auði (sem hefur ekkert bloggað í meira en mánuð) og við ætlum að kíkja á fínu fötin í System (besta að dressa sig upp fyrir Reykjavíkurferðina ;-) )

föstudagur, 30. júní 2006

Erfitt að byrja

Úff það er svolítið erfitt að byrja að blogga svona. Þótt ég fylgist með nokkrum bloggsíðum sjálf veit ég ekki almennilega hvað ég á að skrifa. Ég er eiginlega að byrja að blogga vegna þess að Jóhanna Helgadóttir krafðist þess en auðvitað hef ég haft lúmska löngun til að blaðra eitthvað á netinu þar sem allir geta lesið...
Svo er annað, ég er svo gleymin, vonandi get ég notað þetta til að koma smá skipulagi á líf mitt og hjálpa mér til að muna hvað ég gerði árið 2006 svo ég geti talað eins og Aðalsteinn: ,,það var sumarið 92 þegar við fórum í göngu til Hellisfjarðar..."
Ég er búin að vera í sumarfríi í tvær vikur núna og hef held ég aldrei gert jafn lítið. Ég veit að þið haldið að ég sé á fullu í húsinu svaka dugleg alla daga en það er ekki rétt. Hákon er búinn að vera í vinnu hjá okkur í nokkrar vikur og ég hætti nánast minni smíðavinnu þegar hann byrjaði, kann bara ekki við að vera að þvælast eitthvað í kringum hann, það gengur líka svo mikið á hjá honum að það gæti verið stórhættulegt að vera fyrir. Ég fer nú stundum seinnipartinn með Svenna eða pabba, tek til og svo höfum við líka verið að klæða búta hér og þar sem uppá vantar. Nú held ég að hægt sé að segja að búið sé að klæða allt húsið ýmist með spónaplötum eða gifsi og það voru sko ýmis skot í húsinu sem tóku sinn tíma, það er nefninlega ekki allt þar sem það er séð, spyrjið bara pabba. En sem sagt málarar hafa verið duglegir að spasla alla vikuna, við ætlum að láta þá grunna allt og svo málum við sjálf í einhverjum töff litum. Svo fáum við innréttingarnar vonandi í lok næstu viku, sjálfboðaliðar óskast til að setja þær saman með okkur!! Hver hefur keypt mest frá Ikea??
En jæja ég ætla ekki að skrifa allt sem ég hef að segja í sömu færslunni, ég veit að fólk hefur ekki mikla athygli fyrir langa texta þannig að ég læt þetta gott heita í bili.

Á maður að kveðja??

strax lent í basli

er að athuga hvort þetta fer frá mér

Nýtt útlit

Voða fínt, ekki satt ?