sunnudagur, 12. nóvember 2006

Enn af vetrarferðum

Svenni fór suður í gær. Hann er á leið til Burmingham á morgun mánudag á ráðstefnu. Það var ansi tvísýnt hvort hann kæmist suður en það hafði ekkert verið flogið á föstudag og ekkert fyrr en seinni part laugardags en þá komst Svenni með. Hann hafði átt að fara til Spánar í fyrravetur á ráðstefnu og komst þá ekki vegna þess að skarðið var ófært og missti af ferðinni. En vonandi hefst þetta í þetta skipti.
Ég er óvenju róleg þessa helgi, er ekkert sérlega æst í að læra amk, finnst eins og það sé bara rólegt framundan þar sem það eru bara tvö verkefni sem við þurfum að skila fyrir 22. nóvember ;-) En um það leyti fer ég suður, þ.e. á þarnæsta þriðjudag í námslotu. Vonandi næ ég að hitta alla þótt okkur sé þrælað út í náminu með viðveru frá 8-18.
Ég var bara nokkuð dugleg að taka til í gær náði í blómin okkar til mömmu og pabba þannig að þetta líkist meir og meir heimili hérna. Finnst svolítið freistandi að plata mömmu til mín í næstu viku og fá hana til að mála með mér lokaumferð hér og þar svo hægt verði að hengja upp allar fínu myndirnar okkar.
skipt í tvennt...

miðvikudagur, 25. október 2006

Vetrarferðir

það gerist ansi oft að nemendur eru skráðir hjá mér en mæta ekki eins og núna. Þá nenni ég ekki að byrja á neinu. Hér er kominn vetur, sem er allt í lagi mín vegna fyrir utan það að aðra hverja viku þarf ég að dröslast yfir á Reyðarfjörð til að fara á fund hjá Fræðsluráði. Það er með ólíkindum hvað ég er orðin mikinn aumingi að keyra á veturna. Ef Svenni er með mér læt ég hann alltaf um þetta ef eitthvað er að færð. Þegar ég var 17-19 var nú lítið mál að festast í miðri brattri brekku vegna hálku. Ég lét mig bara vaða afturá bak niður brekkuna þangað til ég fann einhvern auðan blett og reyndi þá upp án nýtt. En kannski kemst ég í smá æfingu í vetur.
Við fórum til Akureyrar um síðustu helgi ásamt mömmu og pabba til að hitta Hörpu og fjölsk. Við gistum í sumarbústöðum í Fögruvík en þeir eru rétt fyrir utan Akureyri vestan meginn í firðingum. Það var mjög fínt að hitta fjölskylduna en það gerist alltof sjaldan. Það er svo helvíti langt til Ísafjarðar og brjálæði að fljúga vegna kostnaðar. Vonandi koma þau um jólin til okkar þar sem ég verð líklega ekki í formi til að þvælast til Ísafjarðar.
Það gengur ágætlega í húsinu okkar þannig séð, Svenni ætlaði nú að setja myndir inn í dag, vonandi gerir hann það.
Ég þarf að fara að taka mig á í náminu mínu, þarf að skila 4 verkefnum í nóvember. Þám fara í djúpa sjálfsskoðun til að komast að því afhverju ég vil vera námsráðgjafi, hvað er það í æsku minni sem gæti haft áhrif á starfið, fyrir hvaða undarlegu hvötum finn ég sem gætu hamlað mér í starfi osfrv. Ég hlýt bráðum að verða mjög meðvituð um mína kosti og galla eins og ég lendi oft í að tjá mig um þá í námi og námskeiðum.
Jæja best að vinna smá áður en ég skelli mér yfir á Reyðarfjörð á fund.

Takk fyrir að hlusta

þriðjudagur, 3. október 2006

Blogg er ekki fyrir alla

ætli það sé ekki komið í ljós að það að blogga er ekkert fyrir mig? Ég læt samt reyna á þetta aðeins lengur áður en ég loka síðunni. Datt í hug að blogga núna ótrúlegt en satt. Er í vinnunni að bíða eftir kynningu sem ég verð með fyrir foreldra barna í Nesskóla sem taka þátt í mentorverkefninu vináttu. Það er áfangi sem ég kenni þar sem framhaldsskólanemar taka að sér börn úr grunnskóla (einn nemi eitt barn) og verja 2-3 stundum á viku með þeim. Mjög spennandi.
Ég viðurkenni að það að blogga kom ekki fyrst upp í hugann, reyndi að klára að horfa á fyrirlestur sem er á netinu í námsráðgjafa náminu mínu, en hann opnaðist aldrei.
Ég hef sem sagt alveg nóg að gera þessa mánuðina. Svenni greyið hefur nánast einn og óstuddur þurft að brasa í húsinu þau kvöld sem hann er heima þannig að það gengur kannski ekkert súper hratt en samt...
Tók viðtal við Auði um daginn, en það var eitt verkefni í náminu mínu sem hún var svo almennilega að taka þátt í. Hún sem sagt ræddi ákveðið vandamál í sínu lífi við mig, ég tók samtalið upp. Um var að ræða virka hlustun þar sem ég endurtek og endurorða það sem hún segir en gef engin ráð, mjög gagnlegt. Svo settist ég niður og pikkaði allt orðrétt inn og greindi það sem ég sagði og hvaða áhrif það hafði á Auði, haldið þið að þetta sé ekki spennandi?
Annars er bara allt í besta lagi. Veðrir æðislega fallegt síðustu tvo daga, óléttan gengur mjög vel og allt í góðu.
Ég er að þjálfa 2. deildar konur í blaki, það er fínt, tek nú ekki mikinn þátt með þeim, spila þó stundum upp til að gera eitthvað.
Bloggið þolir ekki langar færslur (og heldur ekki margar;-) þannig að ég læt þetta duga af mér í bili.
Sjáum til hvenær ég blogga næst...

mánudagur, 31. júlí 2006

Afsakið hlé

Fyrirgefið þið, ég veit að að þið gerðuð ykkur miklar væntingar um regluleg skrif. Fer bara svo asskoti sjaldan í tölvuna þessa dagana. Er oftast út í húsi, þó ekkert í líkingu við Svenna sem er alveg hættur að koma heim fyrir miðnætti.
En ég get einhverra hluta vegna ekki skrifað mikið í einu því þá lendi ég í vandræðum með að birta textann. Ég tala því bara um innflutningspartýið í þessari færslu.
Það verður á laugardagskvöldið næsta vitum ekki alveg klukkan hvað. Mínir fáu dyggu lesendur er að sjálfsögðu allir velkomnir. Eitthvað verður í boði af áfengi en fólk má alveg taka smá með sér líka. Mikilvægast er þó að sem flestir taki með sér tvær mismunandi tegundir af bjór (bara eina af hvorri) til að leggja í púkk því svo verður farið í leik (glæsilega verðlaun í boði þó ekki loðnu vettlingarnir hennar Ollu).
En lengra nær planið ekki í bili, læt þetta duga núna, skrifa kannski bara meira strax í kvöld.

mánudagur, 10. júlí 2006

Framhald

Næsta dag hitti ég þær mæðgur Steinu og Eygló. Við röltum Laugarveginn og þær voru í þessu líka banastuði til að versla að þær náðu að smita mig. Við Eygló keyptum okkur m.a. kínverska silkikjóla, vorum ægilega fínar þótt að afgreiðsludömunni hafi þótt við hálfþybbnar og vilja koma okkur í XL kjóla.
Um kvöldið borðaði ég hjá Salnýju, Alla og Lilju Fanneyju. Lilja er farin að tala ótrúlega mikið, mjög skemmtilegt að hlusta á hana en hún verður 2 gja ára 23. júlí.
Svo fór ég daginn eftir útí Viðey með áðurnefndum mæðgum, það var mjög fínt og við fengum gott veður.
Ég gerði svo ýmislegt fleira en þetta var amk fólkið sem ég hitti. Þeim fækkar hratt sem ég get heimsótt í borginni, allir að flytja til útlanda eða útá land.

Mamma og pabbi hafa verið að hjálpa Hörpu og Gunnari síðustu 10 daga við að rífa upp parket, rífa niður innréttingu og mála í nýja húsinu sem þau voru að kaupa sér á Ísafirði. Þetta er hið myndarlegasta einbýlishús með tvöföldum bílskúr og góðum garði og palli þar sem er alltaf heitt að mér skilst. Þau koma heim á morgun og taka þá strákana Birki og Kára með sér, þá ætti að lifna aðeins yfir Marbakka 13 ;-)

...Og húsið, innréttingin frá Ikea var að koma í dag og málararnir klára líka í dag. Þannig á morgun byrjum við að mála og setja saman skúffur eins og við eigum lífið að leysa. Svenni ætlar að reyna að taka sér frí eftir hádegi næstu vikur svo við eigum minsta séns á að komast inn um Verslunarmannahelgi, ég veit ekki alveg hvernig þetta fer hjá okkur en innflutningspartý verður amk haldið eins og lofað var.

Jæja þetta er orðið gott í bili, heil og sæl (eins og Smári Geirs myndi orða það)

Komin heil heim úr Borg óttans

Já ég kom heim seinni part laugardags og nú er komin mánudagur og því tími til að blogga.
Þetta var hin skemmtilegasta ferð þar sem ég hitti marga og fór ekki í neina húsgagnabúð mjög óvenjulegt. Ég fékk að gista hjá Steinunni, Stefáni og Ólínu eins og ég hef fengið svo oft áður, takk kærlega fyrir mig góða fólk.
Ég náði að láta bjóða mér í mat á þremur stöðum. Borðaði hjá St og St fyrsta kvöldið. Öðrum deginum eyddi ég svo með Guðrúnu Hafnfirðingi en við fórum í Kringluna þrátt fyrir að vera báðar í mjög litlu verslunarstuði, en við redduðum því með því að fara á kaffihús. Svo kíkti ég heim til hennar og skoðaði Friðbjörn og Odd Inga sem varð einmitt þriggja mánaða daginn eftir. Algjör dúlla drengurinn og ótrúlega skemmtileg blanda af þeim hjónum, merkilegt að sjá þegar tekin eru tvö ólík andlit og búið til eitt ;-)

mánudagur, 3. júlí 2006

Reyni að standa mig

Já ég má ekki missa þessa diggu lesendur sem eru búnir að commentera á síðuna :-)
Ég var að kaupa mér flug suður í fyrramálið, Steinunn ætlar að sækja mig og hýsa þessi elska. Hef minnst á áður að mér leiðist svolítið þessa dagana, er bara of löt til að vera í fríi svona án þess að vera í ferðalagi en samt of óróleg til að geta notið þess að gera ekki neitt.
Ég sá fram á að eiga heilan dag með honum Svenna mínum jafnvel án þess að þurfa að fara mikið út í hús í gær. Hann er sko búinn að vera ansi busy mest í kringum björgunarsveitina, var nýbúinn á nokkra daga bátanámskeiði, sem tók m.a. allan laugardaginn. En nei þá var útkall. Þeir stukku af stað til að leita að kajakræðara nokkuð vissir um að þetta væri ísraelsk kona sem er að rúnta ein á kajak kringum landið. Þeir fundu hana strax og hefðu getað komið snemma heim bara ef hún hefði ekki neitað því að hafa sent út hjálparbeiðni. Þeir leituðu því allan daginn af engu (eða vonandi var enginn) en konan viðurkenndi aldrei neitt þannig að þetta var hið dularfyllsta mál.
Við Auður eyddum deginum saman sem var sárabót ;-) löbbuðum um allt og sátum á pallinum hjá henni.
En nú ætla ég að fara að labba á móti Auði (sem hefur ekkert bloggað í meira en mánuð) og við ætlum að kíkja á fínu fötin í System (besta að dressa sig upp fyrir Reykjavíkurferðina ;-) )